Hverdagur

My Photo
Name:
Location: Reykjavík, Iceland

Thursday, March 16, 2006

Komin heim í at

Þá er allt komið á fullt.

Mætti í vinnu í morgun. Þar biðu Friðrik og Guðmundur, hjálparhellur í líki sendibílsstjóra. Ég veit ekki hvernig ég færi að ef ég gæti ekki kallað á þá þegar ég þarf að flytja til húsgögn eða fara með stórar sendingar.

Jónas á Völlum kom og ræddi um raflagnir. Áheyrendur voru tölvukarlarnir mínir, ég kom með gáfuleg innskot. Einstaklega gáfuleg. Til dæmis hef ég alveg ákveðnar skoðanir á því hve margar línur eru lágmark úr símstöð í tengibox. Ég vil geta fjölgað starfsmönnum um sex án þess að lenda í vandræðum. Lágmarks fjöldi lína er því nokkuð meiri en nú. Svo vil ég hafa aðgengi gott, alveg sama þó það sé hægt að gera hlutina fyrir minni pening ef það skilar sér beint í verra aðgengi.

Á morgun byrja flutningar fyrir alvöru milli hæða. Nú erum við að byrja að titra. Getum við ekki sleppt öllu þessu veseni og fengið bara nýtt húsnæði.

Barði brosir og brosir á spjallinu. Hann segist vera að læra undir próf í excel. Já, já Barði minn. Þetta heitir að grettan festist á andlitinu, það hefur enginn svo gaman að excel.

Tuesday, March 14, 2006

Tampere

Jæja,
Nú er langt síðan ég hef bloggað. Ekki er það vegna þess að það hefur verið lítið um að vera. Ég er einhvern veginn ekki komin í blogggír en verð að skrifa reglulega til að komast í stuð og svo ég gleymi ekki aðgangsorðinu.

Er nú í Tampera. Reyni að tileinka mér aðferðafræði framsýni. Já, held að ég geti verið eða orðið framsýn. Langar til að vera heima og vera þar sem ekki er töluð tunga sem ég skil ekkert í, matur sem mér finnst góður og þar sem ekki er fleiri stiga frost. Eitt mega Finnar eiga, hér er alger temenning. Alls staðar hægt að fá gott te, te í könnum, te í sigti. Svart te með mjólk. Engin vandræði. Bara te, te og aftur te.

Fór fyrstu ferð í flísabúðir á laugardaginn var. Það gekk vonum framar. Ég gafst ekki upp og fann meira að segja ákjósanlegar flísar. Líkast til hefur það mikið að segja að Sigmundur er þolinmóður og veit hvar þráðurinn er reglulega stuttur hjá mér. Nú er bara að sjá hvort ég geti keypt flísar og fleira innan ekki svo langs tíma.

Fer á morgun heim, í gegnum Köben. Langar til að geta stoppað aðeins í bókabúð og taka ný blöð og hugsanlega eins og eina bók. Svo styttist í alvöru ferð. Gaman að fara með Sigmundi og sitja ekki ein og borða og horfa á lífið.